föstudagur, desember 16, 2005

Blessuð jólin

Sorglegt
Væri ekki besta jólagjöfin í ár þessi?

Mér finnst það. Neita að taka þátt í Kringlu-kapphlaupi og eyða tugum þúsunda í pjátur sem fyllir holu-í-hjarta fólks augnablik. Neita að fá magasár yfir leitinni að "réttu" jólagjöfunum fyrir fólk sem á allt. Þvílík lúxusvandamál.

Jólaandinn ríkir í mínu hjarta. Bara ekki í formi efnishyggju.

Lifið heil.

13 Comments:

Blogger Hinrik said...

Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.

desember 17, 2005  
Blogger Hinrik said...

Ég legg það til að fólk fari að gefa hvert öðru einskonar gjafakort á styrki til góðgerðastofnanna að eigin vali, sem myndi virka svipað og gjafabréf í Kringluna eða Smáralind. Hægt væri að gefa þetta við ýmis tækifæri, jól, afmæli, you name it.Held að þegar fólk fari að hugsa þetta lengra sé það mun innihaldsríkari gjafaleið í alsnægtasamfélaginu og meiri líkur á að fjárframlög dreifðust jafnt yfir árið í ljósi þess að ýmiskonar hamfarir gerast ekki einungis rétt fyrir jól.Neyðin var mest í Pakistan í október, en ekki núna ef við tökum eitthvað dæmi.Gleðileg og innihaldsrík jól.

desember 17, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

ég og Þórður eigum einmitt 2 litla stráka í Uganda. yndislegt, mæli með því.......

p.s. viltu byrja með mér aftur í kvöld

desember 17, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

Hæ frænka,

Alltaf gaman að skoða bloggið þitt :) Ég geri það oft ... sá þetta nefnilega inná msn´innu þínu.

Er að spá hvort ég megi ekki bæta þér í linka hjá mér?? Því það er bara svo gaman að lesa hugleiðingar þínar ... ;)

Takk kærlega fyrir fallega kommentið í gestabókina hennar Emilíu :) Mér hlýnaði nú bara við að lesa þetta hérna í kuldanum í Dk ...

Gleðileg jól sæta frænka, og vonandi hafið þið það sem allra best um jólin....

Og vonandi gekk þér vel í hjúkkuprófunum .. Mín eru í febrúar... í anatomíu og Grunnleggjandi hjúkrun.... :S Og ég er sko komin með stóran hnút í magann ...

*knús* Ásta

desember 18, 2005  
Blogger Kolbrún Ósk said...

Beilarinn mikli ......

desember 18, 2005  
Blogger huldan said...

Hinrik: hjartanlega sammála þér. Gleðileg jól :)

Ásta frænka: Auðvitað máttu bæta mér sem link á síðunni þinni. Hver er linkurinn á bloggið þitt? Langar að bæta þér hjá mér.
Þú átt eftir að rúlla þessum hjúkkuprófum upp. Gott að hafa svona margar hjúkkur í familíunni ;). Gleðileg jól sæta mín til þín og fjölskyldunnar :)

Kolla: I know! Slapp bara svo seint úr vinnunni og var svo þreytt. Lofa að mæta á næsta KK-ball ;) og hey, af hverju virka ekki linkarnir á nýjustu færslunni? fór alveg eftir þínum ráðlegginum..

Pálí: hættum við einhvern tímann saman?? ;)

desember 18, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

gleði gleði gleði þú ert að koma til mín á morgun ;) hlakka til að sjá þig sæta snúlla...

desember 19, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

var alveg á tímanum þegar þú hringdir í mig 18 25 ;)....skeit næstum á mig úr stressi ...úffff sviti sviti..en allavega sí jú tú morow

desember 19, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

hey ertu hætt að blogga???

desember 20, 2005  
Blogger huldan said...

Nauj nau naujj... er bara að vinna 24/7 þessa dagana.

desember 20, 2005  
Blogger Kolbrún Ósk said...

Kjánabangsi ég og þú.
Var bilun að gera í allan dag og ég rétt meikaði það í bæinn til að sjá Nönu mína rústa þessari keppni.
Ræddi við Pálí í dag og sagði henni að við vildum fá þig með okkur, en hafði svo engan tíma til að hringja áður en fór...ég kjáni.

Þinns hringdi ekki í minns til að gá hvernig þetta væri...þinns kjáni.

knús til þín sæta mín

kemur þokkalega með þegar þetta fer í beina..og þá verður þú sko fremst í flokki ...:)

knús kolls

desember 20, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

Hæ elsku sæta litla systir
gleðileg jól frá okkur og njóttu jólaandans í botn
sjáumst þó seinna verði

desember 22, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

Ok, bloggið mitt er www.hjukkunemi.blogdrive.com ;)

Gleðileg jól sæta ...

desember 22, 2005  

Skrifa ummæli

<< Home