sunnudagur, maí 07, 2006

Þvílík blíða..

Sumarið er skollið á með stæl. Þvílík blíða. Allt er fallegt og grænt. Yndislegt að sjá allt lifna við. Krakkar úti að leika í stuttermabolum. Pör leiðast á línuskautum. Fjölskyldur í göngutúrum. Allir úti við. Sólarpressan allsráðandi. Íslendingar kunna að vera í núinu þegar að sólinni kemur, njóta hennar meðan varir. Það er nefnilega aldrei að vita hvenær hún birtist næst.
Sjávarlónið í Nauthólsvík opnar 15. maí og með þessu áframhaldi verður ekki slæmt að skella baðfötunum í tösku og rölta í Nauthólsvík. Ég hlakka til.


Sjávarlónið í Nauthólsvík. Sjáiði hvað vatnið er tært og fallegt. Manni getur ekki annað en langað ofan í.

5 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

þú ert falleg....

jógatröllið....

maí 08, 2006  
Blogger Kolbrún Ósk said...

Hæ litli engill.
Hvernig væri að við skelltum okkur saman í nauthólinn einn góðan veðurdag í sumar...það væri æði ..fáum þennan í vatninu á myndinni til að kenna okkur pósurnar ;)

maí 08, 2006  
Anonymous Nafnlaus said...

gleðilega sól:) en hvenar fæ ég vinninginn minn??? ég er búinn að bíða og bíða eftir að fá þetta fína ljóð sem þú lofaðir.....

maí 08, 2006  
Blogger huldan said...

Þú ert fallegasta jógatröll í heimi..

Kolla, Nauthóll í sumar, ekki spurning.

Stína, þolinmæði er dyggð. Þetta kemur allt, andinn er á leiðinni, ég bara finn það ;)

maí 08, 2006  
Anonymous Nafnlaus said...

þetta er kærastinn minn, var ég ekki búin að kynna ykkur?

gleymdi í gær að fá nr. hjá naglastúlkunni þinni, ég má nú ekki slá slöku við í skvísuskapnum eða hvað maður segir.. ;)

maí 09, 2006  

Skrifa ummæli

<< Home