Bíóferð - þráhyggja
Ákvað að skella mér í bíó í kvöld með Drauminum, sem gengur einnig undir nafninu Týnda-Kortið, eða 4. Kortarinn.
---
Kringlubíó; Draumurinn leit í augu bíóafgreiðslustúlkunnar og sagði "Tvo miða á Börn takk fyrir" (en þeir sem þekkja Drauminn vita að hann er mjög svalur) og rétti henni gullkortið sitt. Bið. "Það kemur gagnagrunnsvilla" sagði afgreiðsludaman. Draumurinn sagði það vitleysu og bað dömuna að reyna aftur, ennþá svalur. Aftur sama gagnagrunnsvillan. Einungis búin kreditkortum en áfjáð í að fara í bíó reyndum við Draumurinn við alla hraðbanka í Kringlunni. Sama villan. Fórum aftur að miðasölunni,
D: "Hæ, tvo miða á Börn takk".
Afgreiðsludaman nett pirruð: "Gagnagrunnsvilla".
D: "Hvað er málið, þetta er gullkort".
Afgr.dama: "Veitiggi". (hér kem ég inní)
H: "Hey, hringjum í bankadótið og tékkum á þessu".
D: "Fokk ég á bara 60 kr. inneign á símanum. Hringjum úr þínum."
H: "Æi ég á bara 18 kr. Sendu SOS skilaboð í 1400 og fáðu 100 kr. sms lán".
Afgr.dama: "Eruð þið til í að færa ykkur svo hinir komist að", en við lásum úr augum hennar "þið eruð hyski".
----
Ákveðnari en aldrei fyrr að fara í bíó.
H: "Hey, förum í Álfabakka og tékkum á hraðbönkum á leiðinni. Þetta er mjög undarlegt".
D: "Æji Hulda, þetta er pínlegt".
H: "Nei kommon, blessaður vertu, það er alltaf verið að hafna kortum, manstu Björgólf og ísinn hérna um árið".
---
Hraðbanki í Austurveri: Gagnagrunnsvilla.
Hraðbanki í Mjóddinni: Gagnagrunnsvilla.
---
H: "Förum í bíóið og athugum hvort þetta sé í lagi þar".
D: "Æji Hulda, gefumst upp, þetta er mjög pínlegt".
H: "Ég verð að sjá þessa mynd í kvöld. Ef kortin virka ekki þá getum við sagst vera loksins búin að fá pössun fyrir börnin og hefðum hlakkað til langþráðar bíóferðar. Kannski sjá þau aumur á okkur".
D: "Hulda það er óheiðarleiki".
H: "*hóst*".
---
Sambíó Álfabakki;
D: "Góða kvöldið, tvo miða í sal A takk" og blikkaði afgreiðslustúlkuna.
Afgr.dama: "Híhí, já.. ehh það kemur einhver villa".
D: "Núúú, það er undarlegt":
Afgr.dama: "Bíddu ætla að athuga hina posana".
D: "Já takk fyrir kærlega" skælbrosandi.
Afgr.dama: "Æi geðveikt leiðinlegt, það kemur alltaf sama villan. Bíddu ætla að athuga hvað ég get gert" flissandi horfandi í augun á Draumnum.
H. hugsar: "Ég verð að sjá þessa mynd, ætli ég geti selt gellunni Drauminn fyrir bíómiða?".
Afgr.dama: "Því miður, það er villa í kerfinu, þetta er ekki kortið sko, villa hjá Reiknisstofu bankanna. Mjög leiðinlegt, vildi að ég gæti gert eitthvað".
D. tekur dollarabúnt upp úr vasanum, nýkominn frá USA: "Tekurðu dollara?".
Afgr.dama: "Híhíhí, bíddu skal athuga".
H. hvíslar að D: "Ætli við getum sett í pant, eins og í leigubílunum í gamla daga?".
D: "NEI!".
H: "Hey sorrí maður".
Afgr.dama: "Tökum því miður ekki dollara. Þetta er allt mjög leiðinlegt".
---
Hraðbanki Sambíó Álfabakka: Gagnagrunnsvilla.
---
H: "Bíðum aðeins og tékkum svo. Kannski laga þeir villuna innan nokkurra mínútna".
D: "NEI!".
H: "Jú kommon".
D: "Hulda, LET GO!".
H: "Ókei þá".
---
You can´t blame a girl for trying.

10 Comments:
Kníjið á og ....
Finnbogi
...og fyrir yður skal upplokið verða ;)
og hvað ekkert bíó..
Gast þú ekki bara borgað fyrir Drauminn. Þú lætur eins og þú sért fátækur námsmaður en ekki atvinnu ísklifurs-fjalla-íþróttageit.
kv.HJG
og komust þið ekki í bíó?? ef ég hefði verið í glerboxinu í bíóinu hefði ég sko laumað ykkur frítt, þess vegna væri líka ekki góð í glerboxið, allir frítt sem brosa fallega og eru með hvolpaaugu eins og Hulda mín. Og hinir! Bara allir inn og ekkert í kassann, bíókallarnir eru´líka svo ansi fjáðir....
Hey, þetta er gamalt bragð hjá Draumnum..... Þú áttir að borga gamla!!
Nei við komumst ekki í bíó. Kortaviðskipti lágu niðri fattiði, það var ekki hægt að nota kort, hvorki í posa né hraðbanka. Hafði ekkert með kortin að gera, þetta var gagnagrunnsvilla hjá Reiknistofu bankanna, varði víst í ca. hálftíma.
En auðvitað átti Draumurinn að borga, ég borgaði síðast, þannig er díllinn. En ég hefði sennilega séð aumur á lilla ef kortið mitt hefði virkað, sem það gerði ekki.
En ég er sammála þér Sigga, ég hefði samt hleypt okkur inn.. ég meina við tökum bara 2 sæti, sem eru þarna hvort sem er.. what´s the big deal! ;)
Mér finnst þetta ansi dularfullt og það sem mér finnst mest dúbíus við þetta allt saman er að allt strandaði þetta á KORT-inu!
hummm.. gæti mögulega verið að KORT-ararnir hafi haft EITTHVAÐ með þetta að gera????
....gætu verið smá nojaðir með að Draumurinn flytji bara inn á fallegu konuna með hvolpaaugun og sé þeim þar með glataður???
Þú ert farin að skrifa soddan langhunda að ég get ómögulega lesið þá nema í fullkomnu andleysi. Það er hins vegar í góðu lagi því hið fullkomna andleysi knýr oft dyra hjá mér;)
Skrifa ummæli
<< Home