miðvikudagur, október 04, 2006

Í dag..

fór á æfingu í dag
til að minnka fitulag
á vöðvana treysti
til að auka hreysti
talaði við konu góða
hún taldi mig ekki bandóða
og eiga von bjarta
er ég ferlinu starta
og úr hringum fer
enda bráðger
ég fékk ljós
og mikið hrós
á kaffihús ég fór
þar var hafsjór
af fallegu fólki og góðu
og mjög fróðu
vinkonu heimsótti
gott mér það þótti
er geðveikt kát
og þakklát

3 Comments:

Blogger bullogsteypa said...

Mikið ertu nú hagmælt kona. Það verður ekki af þér skafið!

október 05, 2006  
Blogger huldan said...

Jahá, ég er rosa rímari.. uss

október 05, 2006  
Anonymous Nafnlaus said...

flott ljóð og mér þótti líka gaman að fá þig. Ég er líka þakklát

október 06, 2006  

Skrifa ummæli

<< Home